Blogg
15.3.2010
Mad for Mad Men
Mad Men Barbie!!!
Lovsit!
Ef þið eruð ekki búin að sjá Mad Men þá bara plís, náið ykkur í fyrstu seríu. Fötin, tíminn, viskíið.. þetta er allt að gera sig.
E
P.s. Takið sunnudaginn 21. mars frá! Meira info seinna :)
13.3.2010
*H*R*Æ*Ð*I*L*E*G*T*
Bara svona til vonar og vara ef þið eruð ekki örugglega að þvo nýju nærfötin ykkar eftir að þið kaupið þau. Ég rakst á þetta myndband á msnbc.. þetta er möst að horfa á:
10.3.2010
Boudoir - a woman's bedroom or private sitting room
Bresku hönnuðurnir Lisa Z Morgan og Melanie Probert hönnuðu þessi ofurfallegu undirföt... Kannski ekkert voðalega hentug inn undir föt, en þau eru algjört konfekt!
Frills & Thrills!
:)
8.3.2010
Love Peace & the Planet
Nýtt draumadrull frá TIGI..
Allskonar hárvörur í nýrri línu sem heitir:
...og þær eru skv. heimasíðu TIGI:
Ást og grænir kossar
E
5.3.2010
Candyshop!
Valdi mér þessa 3 hluti í körfuna:
Fallegur hversdagskjóll. Rennilásinn að aftan gerir svo mikið :)
£44.90 = 8.620 Kr.
Langar í sætan hversdags-blómakjól fyrir sumarið.
£30.00 = 5.760 Kr.
Elska þessa peysu!
Ég er sjúk í þennan samfesting, við himinháa hæla...
£55.00 = 10.560 Kr.
Þessir 4 hlutir = 33.580 krónur.
Svo er eftir að koma sendingakostnaður ofan á það og elsku tollurinn sem verður alveg örugglega ca. 10.000 kall og þá erum við með 3 flíkur fyrir meira en 45.000 krónur... wowsa!
E
4.3.2010
Maskari & Nikkel
"Þrátt
fyrir að búið sé að banna nikkel í snyrtivörum fer því fjarri að
reglunum sé alltaf fylgt. Ný dönsk rannsókn frá rannsóknarstofu Miljø
og Sundhed leiddi í ljós hátt hlutfall nikkels í 19 tegundum algengra
maskara. Mælt er með því að nikkelinnihald maskara fari ekki upp fyrir 5
mg/kg, en það ættu allir að þola. Í könnuninni kom í ljós að maskarinn
með hæst hlutfall nikkels innihélt 41 mg/kg en sá sem hafði minnst 16
mg/kg. Nikkelinnihaldið er ekki merkt sérstaklega og því getur verið erfitt að forðast þá maskara sem eru hvað verstir."
"En hvernig stendur á því að nikkel er svona algengt í maskörum þrátt fyrir að búið sé að banna nikkel í snyrtivörum?
Þann 1. janúar 2005 gekk í gildi bann við notkun nikkels í snyrtivörum
á Evrópska efnahagssvæðinu. Nikkel í snyrtivörum er þó leyfilegt ef um
er að ræða "óhreinindi". Það þýðir að nikkel getur slæðst með öðrum
hráefnum sem notuð eru í vöruna, í þessu tilfelli með litarefni,
sérstaklega svörtu eða dökku. Engar reglur eru til um hámark nikkels í
formi "óhreininda"."
"Claus Jørgensen sem starfar hjá dönsku neytendastofnuninni segir í viðtali við blaðið Tænk að hámark nikkels ætti að miðast við 5 mg/kg hvort sem miðað er við óhreinindi eða ekki. Jørgensen bendir enn fremur á að í sænskri könnun frá 1990 hafi meira en helmingur maskaranna innihaldið minna en 5 mg/kg. Það sé því ljóst að framleiðendur geti framleitt maskara með minna nikkelmagni kjósi þeir það."
Tegund maskara Nikkelinnihald mg/kg
Svo mæli ég með því að þið kíkið á ÞESSA GREIN sem fjallar um eiturefni í snyrtivörum.
Gangi ykkur vel með þetta :)
E.
3.3.2010
Fresh!
Þessi er alveg pottþétt fullur af parabensulli og allskonar krabbameinsvaldandi... en my god þetta er besti deodorant sem ég hef nokkurn tíman prófað...
Hann hefur líka verið kosinn besti svitalyktareyðirinn af lesendum Allure mörg ár í röð..
Muna bara að velja Light & Fresh Scent lyktina, ekki Powder.. þoli ekki þessa barnarassapúðurslykt sem ameríkanar troða í allar snyrtivörur!
E
2.3.2010
Kósí kósí kósí..
Það er möst að eiga amk einn svona kósígalla. Nauðsynlegt þegar maður kemur heim úr vinnunni/skólanum og langar úr stífu gallabuxunum í eitthvað þægilegt en langar ekki í náttfötin alveg strax..
Maximum kósíness!
E
26.2.2010
Mmm...
Við Ragnar fórum í Kost í dag og fundum þetta...
Coconut M&M !!!
Þetta er syndsamlega gott! Þið verðið að prófa :)
Ykkar súkkulaðihúðaða.
26.2.2010
Wowsa!
Wowsa!
E
24.2.2010
Pssst...
Fáðu þér smá rúnt og kíktu upp í snyrtideild í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti. Þar færðu öll trítment sem þú getur fengið á snyrtistofum fyrir brot af verðinu! Nemarnir þurfa jú að æfa sig og við njótum góðs af og fáum lúxus andlitsbað, handsnyrtingu, fótsnyrtingu og vaxmeðferðir og allskonar skemmtilegt fyrir klink!
Algjör snilld fyrir dekursjúkar prímadonnur í sparnaðarhugleiðingum :)
E
22.2.2010
Cupcake uppskrift
230 gr hveiti
100 gr sykur
6 gr lyftiduft
80 gr sýróp
150 gr mjólk
150 gr vegetable olía
2 egg
Aðferð: Blandið öllu þurra saman, blandið öllu blauta saman og blandið svo öllu saman að lokum og bakið í 15 min við 180° et volá!
Ég gerði þessar í gær fyrir Ástrós afmælisbarn...
Súkkulaðibita-cupcakes með jarðaberjakremi :Þ
Svo mæli ég með því ef þið eruð að fara til USA að kíkka í bakstursdeildina í Wal*Mart. Þar er hægt að kaupa allskonar flott sprinkles og köku/cupcake skraut sem er ekki til hérna heima og fer ekkert fyrir í farangrinum á leiðinni heim. Alltaf gaman að mæta í veislu með eitthvað öðruvísi og spennandi :)
Kveðja,
Cupcake drottningin
20.2.2010
Mig langar svooo...
.. í svona mini-pulsuhund!! Þeir eru rosa vinsælir í San Diego.. ég var uppáþrengjandi pían og hlammaði mér niður hjá gömlum manni á bekk í Balboa Park sem var með svona krúttbombu og fékk að klappa og knúsa og ég varð ástfangin! Ég ætla og skal eignast svona krúttvoffa.
.. og hann verður dekraðasta dýr í heimi og fær bara að lúlla á svona cupcake hundarúmi
Ahhh.. með sprinkles og öllu, lovit!
E
P.s. Nýtt í dagdraumar :)
17.2.2010
Love! Want! Need!
LUVAH !
Lady E
16.2.2010
..
Wowsa..
.. spurning um að splæsa í einn pakka af svona?
Æjj, ég er ekki að fíla þessa píu..
E

